Megintilgangur Evrópuskrifstofunnar er að veita ráðgjöf út frá fjölmörgum sjónarmiðum málefna Evrópusambandsins ásamt því að bjóða upp á sérsniðna viðskiptaþjónustu. Einnig starfar Evrópuskrifstofan sem frétta-og upplýsingaveita. Starfseminni er síðan skipt niður í nokkra þjónustuþætti.
 
Evrópuskrifstofunni er ætlað það hlutverk að vera þjónustuaðili fyrir Íslendinga sem leita eftir upplýsingum varðandi Ísland og ESB sem og fyrir erlenda aðila er sækjast eftir því að komast inn á íslenskan markað. Einnig verður leitast við að aðstoða íslenska aðila að verða sér úti um styrki og fjármagn sem í boði eru innan sjöundu rannsóknaráætlunar ESB.
Evrópuskrifstofunni er ætlað að gegna hlutverki ráðgjafa fyrir þá sem vantar upplýsingar sem snerta innri markað ESB, t.d. skattamál, tolla, reglugerðir o.s.frv. Hlutverk okkar er að auðvelda erlendum aðilum að komast inn á íslenskan markað, svo sem að selja vörur sínar og þjónustu og jafnvel þekkingu.
 

Evrópuskrifstofan starfar einnig sem frétta- og upplýsingaveita fyrir þá sem láta sig málefni ESB og Íslands varða.