Fyrsta rýnifundi milli Íslands og ESB lokið
Rýnifundi um 6. kafla löggjafar Evrópusambandsins, félagarétt, lauk í Brussel 15. nóvember.
Þar var borin saman löggjöf milli Íslands og ESB í þessum samningskafla en í honum er að finna reglur annars vegar um félagarétt og hins vegar um reikningsskil fyrirtækja og endurskoðun. 6. kafli er hluti af EES-samningnum og var á fundinum rætt um framkvæmd reglnanna hérlendis . Ísland hefur þegar tekið upp löggjöf á þessu sviði og ekki er um neinar undanþágur eða aðlaganir að ræða. Ef taka á upp gerðir vegna aðildar að ESB er ekki að sjá að breyta þurfi lögum eða reglum.
Löggjöf Evrópusambandsins skiptist í alls 33 kafla, auk kafla um stofnanir og önnur mál. Áður en eiginlegar samningaviðræður hefjast um einstaka kafla fer fram rýnivinna þar sem löggjöf Íslands og ESB er borin saman til að greina hvar íslensk löggjöf er frábrugðin og hvað semja þarf um. Tveir rýnifundir munu fara fram um flesta samningskafla. Á þeim fyrri kynnir framkvæmdastjórnin löggjöf ESB og á þeim síðari kynnir Ísland sína löggjöf. Í þeim köflum sem falla undir EES-samninginn og þar sem regluverkið hefur að öllu leyti verið tekið upp af Íslands hálfu, verður aðeins um einn fund að ræða.
Greinargerðina má finna á slóðinni http://esb.utn.is/media/ees_ii/Grgheild-6.-Felagarettur.PDF
Greinargerðina má finna á slóðinni http://esb.utn.is/media/ees_ii/Grgheild-6.-Felagarettur.PDF
17. Nov. 2010 kl.21:26
Framvinduskýrsla um samningaviðræður Íslands og ESB birt
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins birti á dögunum svokallaða framvinduskýrslu um samningaviðræður Íslands og ESB vegna aðildar að sambandinu. Í skýrslunni er metin þróun efnahags- og stjórnmála á Íslandi frá því febrúar til október árið 2010 og farið yfir hvaða málefni þurfi að rýna betur í komandi samningaviðræðum.
13. Nov. 2010 kl.15:24
Meira
Meira
Ísland inn í ESB á sama tíma og Króatía
Olli Rehn, framkvæmdarstjóri stækkunarmála Evrópusambandsins, telur eðlilegt að Íslendingar og Króatar fari inn í sambandið á sama tíma ef löndin tvö verða tilbúin til þess að ganga inn um svipað leyti.
14. Okt. 2009 kl.22:22
Meira
Meira
Nefnd um aðildarviðræður við ESB stýrt af Gunnari Snorra Gunnarssyni sendiherra.
Samkvæmt fréttamiðlinum Pressan verður gengið frá því á næstu dögum að Gunnar Snorri Gunnarsson, sendiherra Íslands í Kína og fyrrverandi ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu, verði formaður sendinefndar Íslands í komandi samningaviðræðum við Evrópusambandið. Pressan segist hafa þetta eftir öruggum heimildum innan stjórnkerfisins.
10. Sept. 2009 kl.00:33
Meira
Meira
Utanríkisráðuneytið birtir spurningarlista ESB til Íslands
Spurningalisti framkvæmdastjórnar ESB, vegna umsóknar Íslands um aðild að ESB, hefur verið gerður opinber á heimasíðu utanríkisráðuneytisins.
09. Sept. 2009 kl.23:30
Meira
Meira
Olli Rehn afhendir íslenskum yfirvöldum spurningarlista ESB.
Framkvæmdastjóri stækkunarmála hjá Evrópusambandinu, Olli Rehn, sagði á fundi í Háskóla Íslands í dag að umsóknarferli Íslands að ESB sé mikilvægur þáttur í endurreisn landsins og ekki þurfi annað en að horfa til nágranna Íslands, Finna, sem áttu í efnahagsvandræðum en með umsókn að sambandinu hafi traust aukist á þeirra efnahagslíf sem leiddi til stöðuleika.
09. Sept. 2009 kl.20:06
Meira
Meira
Olli Rehn framkæmdastjóri stækkunarmála ESB til Íslands.
Olli Rehn, framkvæmdastjóri stækkunarmála hjá Evrópusambandinu, er að koma til Íslands þar sem hann mun í næstu viku flytja erindi um viðhorf Evrópu til Íslands í tengslum við aðildarumsóknina. Fyrirlesturinn er á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands og fer fram á ensku.
03. Sept. 2009 kl.16:48
Meira
Meira
Írskur stjórnmálamaður stýrir samninganefnd Evrópuþingsins í aðildarviðræðunum
Evrópuþingmaðurinn Pat Gallagher frá Írlandi mun stýra nefnd á vegum Evrópuþingsins í komandi aðildarviðræðum milli Íslands og ESB. Gallagher er 61 árs gamall og situr á þinginu fyrir Fianna Fáil flokkinn frá Írlandi.
25. Agu. 2009 kl.20:52
Meira
Meira
Íslensk yfirvöld afhenda inn ESB aðildarumsókn
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra afhenti Carli Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu með formlegum hætti við athöfn í utanríksiráðuneyti Svíþjóðar í Stokkhólmi í morgun.
23. Jul. 2009 kl.19:00
Meira
Meira
Framkvæmdastjórn ESB fagnar niðurstöðu Íslendinga.
Framkvæmdastjórn ESB sendi í dag frá sér stutta yfirlýsingu þar sem samþykki Alþingis fyrir því að senda inn umsókna að sambandinu er sérstaklega fagnað.
16. Jul. 2009 kl.16:18
Meira
Meira
Geta Íslendingar nýtt sér aðildarsamning Noregs frá árinu 1994 við ESB í mögulegum aðildarviðræðum við sambandið?
Hverjir eru möguleikar Íslands á að fá undanþágur frá Evrópusambandinu og jafnvel varanlegar? Gætu Íslendingar fengið undanþágur frá hinni sameiginlegu sjávarútvegsstefnu ESB með því að nýta sér aðildarsamning Norðmanna frá 1994 sem þeir gerðu við ESB?
10. Jul. 2009 kl.17:38
Meira
Meira
Fiskveiðistjórn á Íslandi; innan eða utan ESB?
Undanfarin ár hefur átt sér stað mikil umræða um Evrópumál og aðild að Evrópusambandinu (ESB).
09. Jul. 2009 kl.10:53
Meira
Meira
Mun Ísland ganga í Evrópusambandið á undan Króatíu?
Króatía stendur nú frammi fyrir því að þurfa að endurmeta möguleika sína á að fá skjóta inngöngu í Evrópusamband eftir að Tékkland, sem fór með forsæti Evrópusambandsins fyrri helming ársins 2009, frestaði viðræðum um inngöngu Króatíu.
30. Jun. 2009 kl.21:40
Meira
Meira
Opnun Evrópuskrifstofunnar
Evrópuskrifstofan var opnuð í dag með formlegri athöfn í húsakynnum sínum að Krókhálsi 5A í Reykjavík.
05. Jun. 2009 kl.20:03
Meira
Meira


